basil- og hunangshjúpuð lambakóróna með kumminbættum augnbaunum og basilpestói

Uppruni uppskriftar
lambakjöt.is
Uppskrift umsögn

Okkar frábæra lambakjöt hentar við ýmis tækifæri og er sannarlega kjörið hráefni í veislumat. Hér er uppskrift að girnilegum rétti sem sómar sér vel í hvaða veislu sem er. Höfundur. Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari. Uppskriftin birtist í Gestgjafanum 3. tbl. 2007.

Uppskrift innihald

600 g lambahryggur með rifjum, fitulaus
2 msk. hunang
2 msk. basil, smátt saxað
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1/3 tsk. salt
1/2 tsk. svartur nýmalaður pipar
2 dl rasp
2 msk. steinselja, smátt söxuð
Augnbaunir
2 msk. olía
1 skalotlaukur, smátt saxaður
2 tsk. kummin
5 dl soðnar augnbaunir
2 msk. ljóst balsamedik
1 msk. hunang
SaltNnýmalaður pipar
Basilpestó
1 búnt basil
3 hvítlauksgeirar
1 msk. parmesanostur
1 msk. furuhnetur
1 1/2 dl jómfrúarolía
Salt
Nýmalaður pipar

Uppskrift aðferð

Hitið ofninn í 190°C.
Blandið saman hunangi, basil, hvítlauk, salti og pipar og penslið blöndunni á hrygginn. Blandið saman raspi og steinselju og veltið hryggnum upp úr blöndunni. Setjið kjötið í ofninn í 4 mín. Takið það þá úr ofninum og látið standa á borðinu í 4 mín. Setjið kjötið aftur í ofninn í 4 mín. Endurtakið þannig að kjötið verði allt í allt 12 mín. í ofninum.
Augnbaunir Hitið olíu á pönnu og látið skalotlaukinn krauma í 1 mín. Bætið þá kummini, augnbaunum, balsamediki, hunangi, salti og pipar á pönnuna og látið krauma í 3 mín. við lágan hita. Basilpestó Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel.

Skammtar
4