Eggjahræra með reyktum laxi

Uppruni uppskriftar
Margrét Þóra Þorláksdóttir
Uppskrift innihald

3 egg
2 msk rjómi
Pipar
25 g smjör
50 g reyktur lax (í þunnum sneiðum)
2 msk dill (saxað)
Paprikuduft

Uppskrift aðferð

Þeytið saman egg, 1 msk af rjóma og kryddið með pipar.

Hitið smjörið á pönnu á lágum hita. Hellið eggjablöndunni út í og hrærið stöðugt í eða þar til eggin eru rétt að stífna.

Bætið þá laxinum saman við ásamt hinni msk af rjómanum. Hrærið aðeins í og skiptið síðan jafnt á 2 diska.

Skreytið með dilli og paprikudufti.

Skammtar
2