Eggjakaka með osti og rækjum

Uppruni uppskriftar
matis.is
Uppskrift innihald

7-8 egg
5 msk vatn
400 gr rækjur
150 gr óðalsostur, rifinn
1 dl smátt saxaður graslaukur
1/5 tsk svartur pipar
Salt
1-2 msk smjör

Uppskrift aðferð

Saxið graslaukinn. Þeytið saman egg og vatn. Blandið osti, lauk, salti og pipar í. Bræðið smjörið, látið það brúnast örlítið. Setjið eggjahræruna á pönnuna og hrærið sífellt í með gaffli, þar til hræran byrjar að þykkna. Stráið rækjunum yfir og látið bakast undir loki í nokkrar mín. Borið fram með grænu salati.

Skammtar
4