Ein með öllu - voguð nautasúpa

Uppruni uppskriftar
kjot.is
Uppskrift umsögn

Náttúruleg heit og holl, upplagt að elda daginn áður og afgangarnir eru úrval í ísskápnum næstu daga

Uppskrift innihald

600 gr. nautagúllas
1 laukur saxaður
1 búnt steinselja m/stilk-söxuð-ef ekki til þá þurrkuð
2 msk tómtpurre
1 tsk. timian
1/2 tsk. salt
Svartur pipar
2 lárviðarlauf
8 dl kjötsoð-vatn og nautakraftur einfalt og gott
2 dl rauðvín ( má sleppa)
Þetta er soðið í 60 mín.

2 gulrætur
3 kartöflur
1 púrrulaukur
Skorið smátt og bætt í súpuna og soðið áfram í 15 mín.

100 gr sveppir
50 gr beikon
2 hvítlauksrif – pressuð
Skorið í litla bita og steikt lítilsháttar.
Þessu bætt í súpuna og soðið enn í smástund. Hún hefur þá soðið í nær 90 mín

Uppskrift aðferð

Allt soðið í 90 mínútur

Flokkun uppskriftir