Enchiladas með kjúkling

Uppskrift innihald

1 laukur (í strimlum)
2 hvítlauksrif
1 rauð paprika (í strimlum)
1 kúrbítur (í strimlum)
Ólífuolía
Taco kryddblanda
Kumin (ef vill)
200 g kjúklingastrimlar
1-2 dósir tómatar
Sýrður rjómi
Salt og pipar eftir smekk
Tortillur
Rifinn ostur

Uppskrift aðferð

Kryddin steikt í olíu, grænmeti steikt. Kjúklingastrimlar settir saman við Tómatar úr dós settir út í og látið sjóða smá. Smakkað til og kryddað. Sýrður rjómi settur út í Raðið tortillum og kjötsósu til skiptis Rifnum osti stráð yfir.
Bakað í ofni við 180 °C í ca 20 mín