Fjallagrasablóðmör

Uppruni uppskriftar
lambakjöt.is
Uppskrift umsögn

Fjallagrös voru mikið notuð í blóðmör áður fyrr og komu í stað mjöls að miklu leyti. Enn er fjallagrösum stundum bætt út í blóðmör, enda eru þau mikið hollmeti.

Uppskrift innihald

0.5 l fjallagrös (um 25 g)
1 l lambablóð
0.25 l vatn
21 msk gróft salt
200 g hafragrjón
800 g rúgmjöl
600 g mör, smátt brytjaður saumaðir vambarkeppir

Uppskrift aðferð

Fjallagrösin þvegin og látin liggja í bleyti í nokkrar mínútur en síðan er vatninu þrýst úr þeim og þau söxuð, ekki mjög fínt (gjarna í matvinnsluvél). Blóðið síað og hrært með vatni og salti. Hafragrjónum og fjallagrösum hrært saman við, síðan rúgmjöli og loks mörnum. Sett í keppina og þeir fylltir rúmlega til hálfs. Saumað fyrir þá eða þeim lokað með sláturnálum. Saltvatn hitað í stórum potti og keppirnir settir ofan í þegar sýður, pikkaðir vel með prjóni og síðan er lok sett á pottinn og slátrið soðið í 2-2½ klst eftir stærð keppanna. Snúið öðru hverju.
Keppirnir eru svo teknir upp með gataspaða og borðaðir heitir eða látnir kólna.
Þá má frysta ósoðna eða soðna.

Skammtar
4