Fljótlegt indverskt lambakarrí

Uppruni uppskriftar
lambakjöt.is
Uppskrift umsögn

Þótt þessi réttur kallist karrí er ekki notað neitt karríduft í hann - karrí þýðir í rauninni ,,sósa" og Indverjar nota ekki tilbúnar karríblöndur, heldur blanda saman ýmsum tegundum af kryddi. Þetta er mjög einföld og fljótleg útgáfa af indverskum karrírétti.

Uppskrift innihald

6-700 g lambakjöt, beinlaust (t.d. framhryggur)
3 msk. olía
1 laukur, saxaður
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 msk. garam masala
1 tsk. kummin
1 tsk. engifer
0.5 tsk. kanill
0.25 tsk. chili-pipar, eða eftir smekk
250 ml vatn

Uppskrift aðferð

Skerið kjötið í litla teninga. Hitið 2 msk. af olíu á pönnu og brúnið kjötið við góðan hita. Takið það svo upp með gataspaða og setjið á disk. Setjið laukinn á pönnuna og steikið hann í 4-5 mínútur en látið hann ekki brenna. Bætið hvítlauknum á pönnuna og steikið í 1 mínútu í viðbót. Hrærið öllu kryddinu saman við.
Setjið svo kjötið aftur á pönnuna, hellið vatninu yfir, hitið að suðu og látið malla í 15-20 mínútur, eða þar til kjötið er meyrt og sósan þykk.
Berið fram með kjötinu ferskt niðurskorið grænmeti og hreina jógúrt.

Skammtar
4