Glóðasteikt kaffikryddað lamb

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Kaffi - eða öllu heldur kaffilíkjör - er kannski dálítið óvenjulegt krydd á lambakjöt en á þó ljómandi vel við, til dæmis í grillkryddlög.

Uppskrift innihald

1 kg lambaframhryggur í sneiðum
1 msk saxaður engifer
1 dl Kahlúa kaffilíkjör
3 msk olía
Safi úr 1 sítrónu
Sýmalaður pipar
Salt

Uppskrift aðferð

Fitusnyrtið kjötið e.t.v. svolítið. Setjið saxaðan engiferinn í hvítlaukspressu og pressið safann úr honum í skál eftir því sem hægt er. Hrærið líkjör, olíu og sítrónusafa saman við, setjið kjötið út í og látið standa í 10-12 klst. Snúið kjötinu öðru hverju. Takið það síðan úr leginum og þerrið það lauslega með eldhúspappír.
Hitið grillið. Kryddið kjötið með pipar og salti og grillið það við meðalhita í 5-8 mínútur á hvorri hlið, eftir þykkt bitanna. Penslið það með kryddleginum öðru hverju.
Berið fram t.d. með grilluðum maís.

Skammtar
4