Góðgæti drykkjurútsins

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Ekki er vitað fyrir víst af hverju rétturinn hefur þetta nafn (á frummálinu kallast hann O mezes tou bekri), en hann er ljómandi góður, líka fyrir bindindisfólk. Það er hægt að bera hann fram sem pinnamat, þar sem allt er skorið í fremur litla bita og borið fram í sósunn

Uppskrift innihald

1 lambalifur
2 lambahjörtu
4 lambanýru
2 laukar
3 msk. ólífuolía
Nokkrar greinar af fersku tímíani, eða 0.5 tsk. þurrkað
Nokkrar greinar af fersku óreganói, eða 0.5 tsk. þurrkað
Nýmalaður pipar
Salt
2 dl rauðvín
Safi úr 1 sítrónu
100 g harður ostur, t.d. romano eða parmigiano (má sleppa)

Uppskrift aðferð

Hitið vatn að suðu í stórum potti. Setjið lifrina (heila) og hjörtun út í og sjóðið í um 5 mínútur en takið það svo upp og látið kólna ögn.
Skerið hjörtu og lifur í teninga, um 2 sm á kant. Skerið nýrun í helminga, hreinsið þau og skerið hvorn helming í 2-3 bita.
Hitið olíuna á stórri pönnu. Setjið lifur, hjörtu og nýru á pönnuna og brúnið við háan hita. Bætið kryddjurtunum á pönnuna ásamt pipar og salti, hellið víni og sítrónusafa yfir og hitið að suðu. Skerið ostinn í teninga, ef hann er notaður, og dreifið yfir. Lækkið hitann og látið malla rólega í 20-30 mínútur, eða þar til allt er meyrt. Berið fram heitt.

Skammtar
4