Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn
Það er ekkert íslenskt sumar án íslensks lambakjöts á grillið. Hérna er ljúffeng uppskrift eftir Úlfar Finnbjörnsson sem birtist í grillblaði Gestgjafans 2008.
Uppskrift innihald
800 g lamba-prime
2 msk. olía
1 msk. tímíanlauf
1 tsk. nýmalaður pipar
1 tsk. Maldon-salt
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 dl BBQ-sósa
Uppskrift aðferð
Setjið allt nema BBQ-sósu í skál og blandið vel saman.
Grillið kjötið á vel heitu grilli í 2-3 mín. á hvorri hlið.
Penslið þá kjötið með BBQ-sósunni og grillið í 1-2 mín. til viðbótar á hvorri hlið.
Berið kjötið fram með t.d. BBQ-sósu, bökuðum kartöflum, salati og grilluðu grænmeti.
Skammtar
4
Flokkun uppskriftir