Grillað lambafille - fyllt með fetaosti, furuhnetum, spínati og apríkósum

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift innihald

2 heil lambafille
100 g fetaostur
1 poki spínat
100 g furuhnetur
50 g apríkósur

Uppskrift aðferð

Mótið holrými með því að troða trésleif í gegnum bita af lambafille, þannig að gat myndist endilangt.
Skolið spínatið og þerrið. Steikið spínatið í ólífuolíu á pönnu, ásamt furuhnetum. Þerrið á pappír. Bætið fetaostinum saman við og blandið öllu vel saman í skál með höndunum. Skerið apríkósur smátt niður og blandið saman við. Kryddið með salti og pipar. Setjið maukið síðan í sprautupoka og sprautið því inn í gatið á lambakjötinu.
Nú er það tilbúið beint á grillið í u.þ.b. 2 mín á hverri hlið (fjórar hliðar).
Saltið og piprið kjötið eftir smekk.

Flokkun uppskriftir