Grillað lambainnralæri með sítrónutímíani

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Eitt vinsælasta hráefnið á grillið er án efa íslenska lambakjötið. Það er bragðgott, mátulega feitt og svo er líka auðvelt að grilla það. Það er alltaf hægt að slá í gegn með lambakjöti sama hvert tilefnið er, það á alltaf við og verður alltaf hinn klassíski, íslenski grillmatur. Hér er uppskrift úr smiðju Úlfars Finnbjörnssonar, matreiðslumeistara sem birtist í Grillblaði Gestgjafans 2007.

Uppskrift innihald

2 lambainnanlæri, skorin í 2 ½ cm þykkar sneiðar
½ dl olía
1 dl sítrónutímíanlauf
2-4 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 tsk. nýmalaður pipar
2 msk. steinselja, smátt söxuð
Maldon-salt

Sítrónutímíansósa:
2 dl sýrður rjómi
2 msk. majónes
2 msk. sítrónusafi
1 msk. hunang
1-2 msk. sítrónutímíanlauf
1-2 msk. steinselja, smátt söxuð
½ tsk. pipar
1 tsk. salt

Uppskrift aðferð

Setjið allt nema salt í skál og geymið í 2-12 klst. í kæli.
Strjúkið megnið af kryddleginum af kjötinu og grillið á vel heitu grilli í 2-3 mín. á hvorri hlið. Sítrónutímíansósa: Setjið allt í skál og blandið vel saman.
Berið kjötið fram með sósunni og blönduðu grænmeti.

Skammtar
5-7