Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn
Það vantar ekki hvítlaukskeiminn af þessum grilluðu kótilettum. Hér er notað hvítlauksmauk úr krukku í kryddmaukið sem smurt er á þær en einnig mætti nota nýpressaðan hvítlauk, hrærðan með dálítilli olíu.
Uppskrift innihald
8-12 kótelettur
1 sítróna
2 msk hvítlauksmauk úr krukku
1 msk engifer, saxaður smátt
1 tsk timjan, þurrkað
Nýmalaður pipar
Salt
Uppskrift aðferð
Kóteletturnar e.t.v. fitusnyrtar svolítið. Börkurinn rifinn af sítrónunni og safinn kreistur úr helmingi hennar. Hvítlauksmauki, engifer, timjani og pipar blandað saman við safann og börkinn og kótiletturnar smurðar með blöndunni. Látið standa í nokkrar klukkustundir í kæli.
Grillið hitað, kótiletturnar saltaðar og síðan grillaðar við meðalhita í 4-6 mínútur á hvorri hlið. Snúið öðru hverju.
Skammtar
4
Flokkun uppskriftir