Grillaðar kótelettur með karrígljáa

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Kótelettur eiga einkar vel heima á grillinu en það getur verið gott að skera dálítið af fitunni í burtu. Best er að þær séu nokkuð þykkar.

Þessar hér eru dálítið austurlenskar, með súrsætum karrígljáa.

Uppskrift innihald

12-16 lambakótelettur
1 msk karríduft
3 msk olía
3 msk vínedik
2 msk hunang
3-4 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1/2 tsk nýmalaður pipar
Salt

Uppskrift aðferð

Kóteletturnar snyrtar og fituhreinsaðar að hluta. Lítil panna hituð, karríinu stráð á hana og síðan er olía, ediki, hunangi, hvítlauk, pipar og salti hrært saman við. Hitað að suðu og síðan tekið af hitanum og látið kólna ögn.

Kóteletturnar penslaðar vel á báðum hliðum með blöndunni. Grillaðar við meðalhita í 3-5 mínútur á hvorri hlið, eftir smekk. Stráið e.t.v. svolitlu sesamfræi yfir kóteletturnar um leið og þær eru teknar af grillinu.

Afganginn af kryddleginum má setja í pott ásamt 1 smátt söxuðum lauk, 50 g af rúsínum og 1 söxuðu epli og láta malla í 10-12 mínútur.

Þetta er svo borið fram sem kryddmauk með lambinu, soðnum hrísgrjónum og léttsoðnu eða grilluðu grænmeti.

Skammtar
4