Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn
Lambakjötið er tilvalið á grillið hvort sem það er grillað í sneiðum, heilum vöðvum eða steikum. Þessi uppskrift er frá Úlfari Finnbjörnssyni og birtist í grillblaði Gestgjafans 2007.
Uppskrift innihald
1 kg lambalundir
Kryddjurtapestó:
1-2 dl ólífuolía
1 búnt basilíka
1/2 búnt steinselja
1/2 búnt tímían
1/2 búnt mynta
2 msk. furuhnetur
2 msk. parmesanostur
1 msk. sítrónusafi
1 msk. hunang
1/2 tsk. pipar
1 tsk. salt
Uppskrift aðferð
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel. Veltið kjötinu upp úr 1/3 af kryddjurtapestóinu og geymið við stofuhita í 1 klst.
Grillið kjötið á vel heitu grilli í 2-3 mín. á hvorri hlið.
Berið kjötið fram með afganginum af pestóinu og t.d. grilluðu grænmeti.
Skammtar
4-6
Flokkun uppskriftir