Grillaðar laukmarineraðar kindalundir

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Einfaldari gerist marineringin varla - laukur, sítróna og ólífuolía. Hér eru notaðar lundir en einnig mætti nota marineringuna á hvaða lambakjötsbita sem er.

Uppskrift innihald

600 g kinda- eða lambalundir
1/2laukur
1/2 sítróna
3 msk ólífuolía
Nýmalaður pipar
Salt

Uppskrift aðferð

Lundirnar skornar sundur eftir endilöngu, nema þær séu mjög litlar, og hver lund skorin í 2-3 bita.

Laukurinn settur í matvinnsluvél og saxaður í mauk. Sítrónusafanum þeytt saman við og síðan olíunni. Lundirnar settar í skál, laukblöndunni hellt yfir og látið standa í um 1 klst.

Þá er kjötið tekið úr marineringunni og hún strokin vel af. Kryddað með pipar og salti, e.t.v. penslað með ögn meiri olíu, og þrætt upp á teina. Útigrill eða í ofninum hitað og kjötið grillað í um 2 mínútur á hvorri hlið við háan hita.

Skammtar
4