Grillaðar lærissneiðar með austulensku grænmeti

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Einföld uppskrift að lambalærissneiðum sem marineraðar eru í austurlenskum kryddlegi áður en þær eru grillaðar á útigrilli eða í ofni og bornar fram með léttsteiktu grænmeti.

Uppskrift innihald

1 kg lambalærissneiðar
2 msk sojasósa (Heilsusíðan mælir með tamarisósu)
1 msk þunnt hunang
Safi úr 1/2 sítrónu
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2 tsk rifinn engifer
1 poki (4-500 g) frosin austurlensk grænmetisblanda
1 msk olía
1 msk sesamfræ (má sleppa)

Uppskrift aðferð

Lærissneiðarnar settar á disk. Sojasósu (tamarisósa), hunangi, sítrónusafa, hvítlauk og engifer blandað saman og hellt yfir. Látið standa í a.m.k. 1 klst og kjötinu snúið öðru hverju.

Grænmetið látið þiðna að mestu. Útigrill eða grillið í ofninum hitað og lærissneiðarnar grillaðar við góðan hita í um 5 mínútur á hvorri hlið. Penslað með kryddlegi eftir þörfum.

Á meðan er olían hituð í wok eða á pönnu og grænmetið veltisteikt við háan hita í nokkrar mínútur. Afganginum af kryddleginum hellt yfir (ef enginn afgangur er mætti hræra 1 msk af sojasósu (Tamarisósu)saman við grænmetið) og sesamfræjunum stráð yfir.

Borið fram með kjötinu.

Skammtar
4