Grillaður kindahryggvöðvi

Uppruni uppskriftar
lambakjot.is
Uppskrift umsögn

Auðvitað má líka nota lambahryggvöðva í þennan gómsæta rétt en kjöt af fullorðnu er næstum jafnmeyrt og jafnvel enn bragðbetra. Með réttinum mætti t.d. bera fram salat úr steiktum fíflablöðum (þó aðeins á vorin, fíflablöðin þurfa að vera ung), eða þá gott grænmetissalat.

Uppskrift innihald

800 g kindahryggvöðvi (fillet)
Safi úr 1/2 sítrónu
2 msk. ólífuolía
2 msk. mintulauf, söxuð eða 2 tsk. þurrkuð
1/2 laukur, saxaður smátt
Nýmalaður pipar
Salt

Uppskrift aðferð

Skerið kjötið í um 10 sm langa bita. Kreistið safann úr sítrónunni í skál og hrærið olíu, mintulaufi, söxuðum lauk og pipar saman við. Veltið kjötinu upp úr kryddleginum og látið það liggja í honum í nokkra klukkutíma í kæli, og gjarna til næsta dags.

Hitið grillið vel, saltið kjötið og grillið það í 3-4 mínútur á hvorri hlið, eða eftir smekk og þykkt bitanna.

Berið fram t.d. með fersku grænmeti.

Skammtar
4